Ýmis atvik og aðstæður geta komið upp í einkalífi okkar og starfi sem gott er að geta talað um við óháðan aðila, án fyrirfram-
mótaðra skoðana. Í samtalinu uppgötvum við ótal nýja fleti á málum okkar, fáum nýjar hugmyndir og sjáum nýjar leiðir. Við komumst að því hvað við raunverulega viljum – sem auðveldar okkur að taka næsta skref.
Coach er samtalsaðili bundinn þagnarskyldu. Hann hjálpar þér að finna þá leið sem þú telur besta. Flest coach-samtöl fara fram í gegnum síma eða tölvu. Með nútímatækni er bæði auðvelt og ódýrt að leita ráðgjafar í öðrum löndum – sem er kostur í fámennu landi. Aðrir kostir eru:
Samtalið fer fram í þínu eigin umhverfi
Þú þarft ekki að ferðast milli staða
Þú getur framkvæmt hugmyndir þínar strax að loknu samtali
Það að nema staðar andartak stöku sinnum er oft eina leiðin til þess að vera fær um að halda áfram.